Loksins, loksins....

.... hrökk sú gamla í gang og tók fyrstu göngu ársins, og komin tími til Wink
Tók nokkra hringi á íþróttavellinum því það er ekki fæti niður stingandi til göngu hér á héraði, rennandi blaut svell um allar koppagrundir. Og mikið var nú nýja húfan sem ég fékk í jólagjöf hlý og góð ..... takk Róbert og Freyja Kissing
Tveir innstu hringirnir eru upphitaðir svo maður er öruggur þar og hvað það var yndislegt að viðra sig loksins, þó ekki sé nú mikil skemmtun í því að ganga hring eftir hring Tounge
En nú er að halda dampi og fara á hverjum degi ekki veitir mér nú af að liðka skankana aðeins eftir kyrrsetuna Heart

Fjölgaði aftur...

...í kotinu um helgina, það bilaði hitakúturinn hjá syninum svo hann og Castro komu aftur uppeftir Smile 
Svo kom Mikael í pössun eftir hádegi í dag og þá færðist fjör í leikinn.
Mikael var settur í bað  002  og Castro fannst það mjög forvitnilegt og fylgdist með fjörinu, reyndar var hann hálf smeykur við gusuganginn svo hann hélt sig í hæfilegri fjarlægð Heart 

003


Ein í kotinu

Þá erum við gömlu orðin ein í kotinu aftur, skrýtið að geta sest niður án þess að fá flykkið upp í fangið Wink  en það er nú ekki laust við að maður sakni hundsspottsins. Heart

Sólargeisli í dag...

... í hríðinni Wink  sonarsonurinn stoppaði smástund þegar hann fór hér í gegn með mömmu sinni í flug til Rvík og áfram til Vestmannaeyja. Alltaf gaman að hitta þennan unga herramann, sem þáði púðursykurskjúkling hjá ömmu sinni, algjört uppáhald hjá honum. Heart
Gabriel að borða

Rólegur dagur í dag...

... hjá okkur Castro, smá at í vinnunni í morgun en ég vinn bara til 12 svo það var bara í góðu lagi Wink
Síðan erum við búin að eiga rólegan dag, fór smá stund út með Castro á pallinn, og henti bolta aftur og aftur og hann sótti og sótti. Er svo heppin að hafa stóran pall með hárri girðingu svo hann getur ekki stokkið yfir þó hann sé laus. Síðan erum við búin að taka það rólega í dag og nú liggur hann og bíður eftir að "afi" og "pabbi" komi heim úr vinnunni, sennilega búinn að fá leið á "ömmu"Heart
Castro letidýr

Síðasta ganga ársins..

..var að venju farin í Hallormsstaðaskógi, reyndar var fljúgandi hálka að keyra þangað en alveg þess virði fyrst allt gekk slysalaust fyrir sig.
Tókum með okkur jóla/áramóta gestinn okkar ferfætta og hann skemmti sér konunglega, laus út í fallegri náttúrunni og hoppaði og skoppaði um allt alveg að springa úr kæti Wink Heart
Castro glaður :) Öll saman

 


Loksins, loksins...

... fór ég út á göngu, samkvæmt göngubókhaldinu hef ég ekki farið síðan 23 nóv. fuss um svei þetta er nú ekki gott til afspurnar. Fel mig bak við þá afsökun að hér er fljúgandi hálka og er búin að vera undanfarnar vikur en nú voru settir broddar undir gönguskóna og áhætta tekin og viti menn ég kom heil heim Smile Mikið var nú hressandi að komast út.Heart

003


Castro í heimsókn...

... um jólin hér er hann að bíða eftir eigandanum sem brá sér út. Stendur og starir á hurðina greyið.Heart
008

Nú líða fer að jólum...

... og hátíð fer í hönd Smile með laufabrauði og hangiketi ofl. ofl.

003
Mikið er gott að ég skuli geta haldið mér svona slakri, anda inn og anda út, vonandi tekst mér að halda kúlinu fram að kl 6 á aðfangadag og þá mega jólin koma fyrir mér Smile 
Nei auðvitað er ekkert til að stressa sig yfir, jólin koma á réttum tíma hvort sem ég er búin að ná öllu ryki og skúmi sem leynist víða, á svona tímum þakka ég fyrir nærsýnið, eitthvað hlýtur að valda því að mér finnst ég ekki þurfa að þrífa eins mikið og ég gerði þegar ég var yngri og með betri sjón Wink
Stefni á verslun núna á eftir, klára að versla fyrir þessa 3 daga svo ég geti nú gert vel við fólkið mitt sem kemur til með að kíkja til okkar gamla, ætla að plata hann upp úr leisibojstólnum til að vera burðarmaður hjá mér Heart


Yfirhalning fyrir jólin..

Var í hárlitun áðan, pantaði þá fótsnyrtingu sem ég fæ á föstudaginn, oh hvað ég hlakka til finnst það æðislegt Smile
Er svo að fá mér kaffitár áður en ég storma í sjúkraþjálfun, fæ að prófa nýja skvísu og vonandi fæ ég gott nudd hjá henni, þetta er bara yndislegur dagur í alla staði.
Frábær morgunmatur í morgun eftir svefnlitla nótt bjargaði mér alveg með að komast í vinnuna, alltaf frekar erfitt að hafa sig af stað svona lítið sofin en þetta dekur í dag bjargar alveg deginum Smile
Samt hálfskammast maður sín fyrir að eyða peningnum í svona þegar virðist vera að fólk hér á Íslandi á varla í sig né á og að nokkur skuli þurfa að hírast í óupphitaðri íbúð að á bara ekki að þekkjast hér á landi Frown ég bara á ekki orð, hlýt að vera orðin alveg úr takti við raunveruleikann svona rétt eins og Jóhanna forsætisráðherra
En sem betur fer er ég með vinnu og get leyft mér svona einu sinni á ári og ég ætla að reyna að njóta þess þrátt fyrir allt. Heart


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband